Þegar pantaðar eru tertur með sérskreytingu skal fyrst ákveða bragðtegund og svo útlit. Myndir er að finna í albúmum undir „Myndasafn“ hér að ofan eða á samfélagsmiðlunum okkar.
Myndirnar hér að neðan sýna bara dæmi um hvernig terturnar geta litið út. Fyllingin í tertunni ákvarðar ekki útlit hennar en þær eru þá fylltar með þeirri bragðtegund sem valin var en smurðar að utan með vanillusmjörkremi, ólituðu eða þeim lit sem óskað var eftir. Skreytingarnar taka síðan mið af þeirri mynd sem send er með pöntuninni. Aukakostnaður getur bæst við kökurnar ef óskað er t.d. eftir 3D fígúru eða lifandi blómum.